|
|
The Dark Knight | |
![]()
|
Batman Begins varð einhver vinsælasta mynd ársins 2005 en með henni tókst leikstjóranum Christopher Nolan að endurvekja Leðurblökumanninn. Eftir að Batman Begins sló í gegn, sér í lagi eftir að tilkynnt var að Jókerinn yrði næsti andstæðingur Leðurblökumannsins, hófst eftirvæntingin eftir þessari mynd. The Dark Knight hefur fengið meira umtal en flestar myndir, má það rekja til eftirvæntinganna að hluta sem og ótímabæru fráfalli aðalleikarans, Heath Ledger. The Dark Knight hefst stuttu eftir lok Batman Begins. Gotham er orðin betri borg til að búa í þökk sé Bruce Wayne. Viðhorfsbreyting hefur átt sér stað meðal íbúa og embættismanna borgarinnar um að sporna gegn glæpum. Nýr saksóknari, Harvey Dent hefur ákveðið að brjóta mafíuna upp og fangelsa forystumenn hennar og virðist ætla að takast það ætlunarverk sitt með hjálp frá Gordon lögreglustjóra og Bruce Wayne, Leðurblökumanninum. En í þann mund sem mafían er við það að leggja upp laupana, birtist Jókerinn. Hans markmið er ekki að græða pening eða gera vel við sjálfan sig eins og hinir einföldu glæpamenn. Hann er stórsnjall, sama um eigið skinn og annarra og vill einungis horfa á borgina brenna. Það er frægt minni úr kvikmyndum, að ekkert geti stöðvað einstakling sem er tilbúinn að fórna eigin lífi og annarra til að ná ætlunarverki sínu. Það á vissulega við um Jókerinn. Hann er algjörlega óútreiknanlegur og það er engin lína sem hann er ekki tilbúinn að stíga yfir. Spurningin sem Bruce Wayne spyr sjálfan sig að í myndinni er þessi, hvernig getur maður stöðvað slíkan mann. Þó árið sé einungis hálfnað þá eru þær raddir orðnar háværar sem vilja að Heath Ledger landi óskar fyrir leik sinn og persónusköpun. Um það er lítið annað hægt að segja en það gæti vel gerst. Hann ber þessa mynd uppi og skyggir á aðra leikara myndarinnar, sem þó er ekki hægt að segja annað um en að séu frábærir. Auk Ledgers, er Christian Bale áfram á sínum stað sem Bruce Wayne/Leðurblökumaðurinn. Hann er frábær í sínu hlutverki eins og nánast allir leikarar myndarinnar. Gary Oldman, Morgan Freeman og Michael Caine snúa allir aftur og fara óaðfinnanlega með viðkomandi rullu. Þá er Aaron Eckhart nýr sem saksóknarinn Harvey Dent og bætir hann miklu við myndina enda góður leikari. Þá verður einnig að nefna Maggie Gyllenhaal sem tekur við hlutverki Rachel Dawes, sem Katie Holmes lék í fyrri myndinni. Maggie Gyllenhaal er leikkona en það er Katie Holmes ekki. Þar Katie Holmes dró úr fyrri myndinni, bætir Maggie Gyllenhaal við í þessari. Þetta voru gríðarlega góð skipti og mikilvæg fyrir myndina enda stórt hlutverk. Í raun þá er ekki hægt að finna neitt umkvörtunarefni sem skiptir máli. Handritið er mjög þétt og vel skrifað, og spennan byggist upp frá fyrstu sekúndu. Óútreiknanleiki Jókersins gerir það að verkum að áhorfandinn veit aldrei hvaða stefnu myndin tekur. Leikstjórinn Christopher Nolan sannar það að hann er ekki einungis kvikmyndagerðamaður, heldur listamaður sem getur spilað með tilfinningar áhorfenda og haldið spennumögnuðu andrúmsloftinu í tæpa þrjá klukkutíma.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com