The Bank Job
 

 

 

The Bank Job kemur nokkuð skemmtilega á óvart því hún brýtur mjög óvænt regluna um Jason Statham, aðalleikara myndarinnar.  Reglan segir að engin mynd sem skartar Statham í aðalhlutverki geti verið góð.  Vissulega er hann enn einstaklega lélegur leikari en myndin er spennandi, fyndin og skemmtileg.

Myndin minnir á myndir Ealing kvikmyndaversins að því leyti að hún er afar bresk og einföld.  Hún er byggð á sönnum atburðum um bankarán sem er skipulagt af bresku leyniþjónustunni til að eyðileggja klúrar myndir af meðlimi konungsfjölskyldunnar sem svarti hryðjuverkamaðurinn, Michael X geymir í einu bankahólfanna.  Ekki er hægt að rétta yfir Michael X fyrr en myndirnar eru eyðilagðar.  Smákrimmar eru fengnir til verksins en vitaskuld eru mistök tíð en þó ekki endilega til hins verra.

The Bank Job er topp mynd.  Það er engin óþarfa vitleysa sem skemmtir fyrir henni, handritið er þétt  og sagan áhugaverð.  Fyrir utan óreynda og jafnvel lélega leikara er ekkert sem dregur úr gæðum hennar.  Myndinni má vel lýsa einfaldlega sem góðri skemmtun.

 

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com