|
|
Sex And The City | |
![]()
|
Loksins,
loksins, loksins leit kvikmyndin Beðmál í
borginni dagsins ljós. Eftir margra ára bið eru
vinkonurnar Carrie, Samantha, Miranda og
Charlotte komnar aftur og í þetta sinn stærri og
betri en nokkru sinni fyrr.
Myndin er skemmtileg og sagan er góð. Þetta er dæmigert gamandrama af bestu gerð auk þess sem það er mikill klassi yfir myndinni. Vinkonurnar fjórar standa sig allar vel í hlutverkum sínum og þá helst Sarah Jessica Parker (The Family Stone, Miami Rhapsody) sem hefur fyrir löngu sannað sig sem afbragðs gamanleikkona. Stílisti kvikmyndarinnar Patricia Field hefur notið mikilla vinsælda eftir að hún sló í gegn sem stílisti þáttanna og er hér að sýna snilldar takta. Vinkonurnar eru alltaf flottar og fínar í tauinu og það er sannkallað augnayndi að sjá þær á breiðtjaldinu. Það er nostrað við hvert smáatriði og það skilar sér í litríkum og fallega stíliseruðum fötum sem henta persónunum alltaf frábærlega. Helsti galli myndarinnar er Louise sem leikin er af American Idol söngkonunni Jennifer Hudson. Leikur hennar er einstaklega ósannfærandi og hlutverk hennar er bæði væmið og óþarft. Hún hefði alveg mátt enda á klippiborðinu. Þá hefði verið betra að gefa Stanford, einum besta vini Carrie, veigameira hlutverk í kvikmyndinni. Það er hneyksli að hann hafi ekki haft svo gott sem eina heila setningu í myndinni og undirrituð þorir að fullyrða að hans hafi verið sárt saknað af mörgum tryggum aðdáendum. Í heildina á litið er Sex and the City frábær mynd sem aðdáendur þáttanna ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com