|
|
Juno | |
![]()
|
Juno er hreint út sagt frábær þroskasaga um táningsstúlku sem verður óvænt ófrísk og ákveður að gefa barnið til ungra hjóna sem ekki gátu eignast börn. Ýmislegt gerist þó áður en að því kemur að hún þarf að efna loforðið. Hin tvítuga Ellen Page stelur senunni í titilhlutverkinu, sem Juno, heillandi og gáfaður unglingur sem veit nákvæmlega hvað hún vill. Jennifer Garner og Jason Bateman leika ungu hjónin og Michael Cera, sem lék á móti Baseman í Arrested Development, leikur föðurinn. Sagan er bráðskemmtileg frá upphafi til enda, fyndin en þó með alvarlegum undirtónum. Juno er öðruvísi mynd sem enginn ætti að missa af.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com