Get Smart
 

 

 

Smart spæjari, fulltrúi 86 fyrir leyniþjónustuna CONTROL er mættur á nýjan leik.  Hin illu samtök KAOS hefur tekist að koma höndum yfir fjöldan allan af kjarnorkuvopnum og hyggjast þau dreifa þeim meðal hryðjuverkahópa og einræðisríkja.  Eftir að KAOS ræðst á höfuðstöðvar CONTROL og tekst að taka flest alla njósnara samtakanna úr leik er það komið í hendur Smart spæjara og fulltrúa 99 að stöðva áformin. 

Það er Steve Carell sem fer með hlutverk Smart spæjara.  Carell smellpassar í hlutverkið og miðað við handritið er erfitt að ímynda sér annan leikara í því.  Þá eru önnur hlutverk vel mönnuð, Anne Hathaway og Dwayne Johnson (The Rock) fara með önnur stór hlutverk.  Grín hefur alltaf verið sterkasta hlið Dwayne Johnson þó hann hafi hingað til aðallega farið með öllu alvarlegri hlutverk í kvikmyndum.  Það má segja að hann fari á kostum í þessari mynd, hann og Carell virðast ná vel saman og hann stelur flestum senum sem hann er í.

Get Smart er vel heppnuð gamanmynd.  Hún er mjög fyndin á köflum, hefur fáa hæga og leiðinlega hluta og heldur sér við efnið út myndina.  Það ættu flestir að geta haft gaman af þessari mynd.  Hún virkar fyrir börn, unglinga og fullorðna og má því kalla hana frábæra fjölskyldumynd.

 

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com