|
|
Charlie Wilson's War | |
![]()
|
Charlie Wilson er þingmaður frá Texas. Hann er óheflaður í allri sinni framkomu, drykkfelldur og skammast sín ekki fyrir það að skemmta sér með melludólgum og strippurum. Hann beitir sér ekki fyrir mörgum málum, sér í lagi málum sem koma honum ekkert við. Þetta breytist allt þegar Sovétríkin ráðast inn í Afganistan því allt í einu fer þingmaðurinn frá Texas að beita sér af fullum krafti fyrir stuðningi Bandaríkjanna við Afgani. Það er Aaron Sorkin sem skrifar handrit myndarinnar sem byggt er á raunverulegum atburðum. Aaron Sorkin er auðvitað þekktur fyrir að vera maðurinn á bakvið West Wing þáttaseríuna. Margt af því sem einkenndi West Wing má finna í þessari mynd. Charlie Wilsons War fjallar um stjórnmál og stríð en er á sama tíma mjög létt og skemmtileg og á köflum stórfyndin. Að nokkru leyti er það aðalleikurunum Tom Hanks og Philip Seymore Hoffman að þakka en báðir eru þeir alveg frábærir í sínum hlutverkum. Það er ekki annað hægt en að mæla með þessari mynd. Hún er frábær skemmtun, einstaklega vel skrifuð, fyndin og jafnvel lærdómsrík.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com