Before the Devil Knows You're Dead
 

 

Before the Devil Knows You're Dead er nýjasta mynd leikstjórans kunna

Sidney Lumet, sem á að baki stórmyndir á borð við 12 Angry Men frá

1957, The Verdict frá 1982 og Network frá 1976. Hann er kominn hátt á

níræðisaldur, 83 ára, en ekki enn sestur í helgan stein.

 

Að þessu
sinni nær hann fram því besta úr leikurunum í sögu sem nær hins vegar

ekki alveg að halda athygli áhorfenda allan tímann. Hugmyndin er

áhugaverð og persónusköpunin nokkuð sterk, en satt að segja hefði

sagan virkað mun betur sem stuttmynd heldur en sem rúmlega tveggja

tíma bíómynd.

 

Leikararnir eru sem fyrr segir í toppformi, einkum

Philip Seymour Hoffman og Albert Finney. Ethan Hawke stendur sig

einnig býsna vel sem úfinn og ræfilslegur yngri bróðir Hoffmans, og er

því miður ekki jafn myndarlegur og hann var fyrir nokkrum árum. Sagan

er hins vegar hæg og nokkuð fyrirsjáanleg og jafnvel ótrúverðug þegar

á líður. Það er hins vegar óskandi að Lumet haldi áfram kvikmyndagerð

fram á tíræðisaldur að minnsta kosti.

María Margrét Jóhannsdóttir

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com