8 Mile  



Er það satt? Getur Eminem leikið?

Ég er eiginlega engu nær eftir að hafa séð 8 Mile. Hann er alls ekki slæmur en jafnvel ég gæti leikið sjálfan mig. Bíðum eftir að hann taki að sér að leika Hamlet og sjáum svo til.

Ferill Eminem hingað til hefur verið ein allsherjar sigurganga og er hann þessa stundina langvinsælasti tónlistarmaður heims. Og eins og svo margir sem hafa fundið sig í svipaðri stöðu hefur hann ákveðið að taka skrefið lengra og reyna fyrir sér í kvikmyndunum. Mariah Carey og Britney Spears hafa reynt þetta nýlega með misjafnlega slæmum, nei hræðilegum, afleiðingum. Því var það með vissum efa í brjósti sem ég fór á 8 Mile.

Það verður að teljast Eminem til hróss að maðurinn veit hvað hann rappar. Valið á Curt Hanson (L.A. Confidential, Wonderboys) til að leikstýra myndinni var nefnilega stórsnjallt því maðurinn veit nákvæmlega hvað þarf til að láta svona lagað ganga upp. Myndin er hrein formúla sem fjallar um upprennadi rappara í Detroit (Eminem) sem þarf að sigrast á eigin ótta og erfiðri samfélagsstöðu ef hann ætlar að komast til manns. Vísar nafnið 8 Mile til hraðbrautar þar í bæ sem skilur að úthverfin frá fátæka miðbæjarhverfinu sem Eminem ólst víst upp í sjálfur. Í hverfinu búa hin ýmsu gengi sem berjast ekki einungis með hnefunum heldur einnig í nokkurs konar rímnakeppnum sem eiga sér reglulega stað. Þar rappa tveir aðilar ónot um hvorn annan og sá sem gerir það betur er úrskurðaður sigurvegari. Svona keppni þarf Eminempersónan auðvitað að vinna til að sýna hve mikið hann hefur þroskast. 

Myndin verður í öruggum höndum Curtis Hansons, hin besta skemmtun. Umhverfi myndarinnar er skemmtilegt, sagan ágæt og leikurinn fínn. En það besta við myndina er sjálft rappið sem er reglulega skemmtilegt að fylgjast með jafnvel fyrir leikmann eins og mig. Þar er líka Eminem á heimavelli og bunar út úr sér fullt af flottum rímum. Ætli hann hefði ekki verið kallaður hagyrðingur hér fyrr á öldum? 

Eina senu verð ég þó að minnast á sem var frekar slöpp. Í miðri mynd tekur Eminem sig til og ver vinnufélaga sem er samkynhneigður gagnvart ónotum félaga sinna. Eins og flestir vita hafa ásakanir um hommafælni fylgt Eminem í gegnum ferilinn og er þetta því út sem ansi léleg tilraun til að bæta mannorðið.

Og að lokum:

Ef þið farið á 8 Mile
þá gangið þið út úr bíó sæl
ekkert væl
bara smile!

Ætli ég fái hlutverk í næstu mynd? - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com