|
|
Juno | |
![]()
|
27 Dresses er rómantísk gamanmynd sem lofaði góði en nær alls ekki að standa undir væntingum. Hér eru allar klisjur slíkra kvikmynda saman komnar í arfaslöku handriti handritshöfundarins Aline Brosh McKenna, sem stóð sig mun betur með aðra rómantíska gamanmynd, The Devil Wears Prada. Katherine Heigl stendur sig ekki nógu vel í aðalhlutverkinu, hún er ósannfærandi og vekur upp litla sem enga samúð hjá áhorfendum. Það er í sjálfu sér hægt að gera ágætar formúlumyndir í þessum anda, en stundum misheppnast formúlan illilega og það virðist hafa gerst hér hjá hinum lítt reynda leikstjóra Anne Fletcher. Stelpur, í guðanna bænum ekki draga kærastana ykkar með á þessa mynd því þá munu þeir sennilega aldrei vilja sjá aðra rómantíska gamanmynd á ævinni.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com