10.000 B.C.
 

 

D‘Leh er ungur veiðimaður úr Yagahl-ættbálknum.  Yagahl-ættbálkurinn býr hátt í fjalladal og lifir á loðfílum sem þeir veiða úr dalnum.  Dag einn finnst ung stelpa, Evolet og er í spádómi sögð undanfari fjórfættra djöfla sem muni ráðast á ættbálkinn.  Mörgum árum seinna rætist spádómurinn þegar stríðsmenn á hestbaki ráðast á Yagahl.  Þeir drepa marga og taka aðra með sér sem þræla þ.á m. Eveolet.  D‘Leh er sendur  ásamt tveimur öðrum veiðimönnum til að bjarga vinum sínum úr klóm ræningjanna.

Það hafa ekki verið gerðar margar kvikmyndir um þetta skeið mannkynssögunnar.  Það er því vissulega ný upplifun að horfa á þessa mynd.  Því miður þá er söguþráðurinn ekki nógu áhugaverður og handritið frekar slappt.   Þrátt fyrir að vera með fyrstu myndum til að fjalla um þennan tíma þá er myndin klisjukennd og ófrumleg. 

Roland Emmerich er leikstjóri myndarinnar en hann hefur áður leikstýrt t.d. Independence Day, Godzilla og The Day After Tomorrow.  Hann er mjög mistækur leikstjóri, reynir ávallt að höfða til allra og fyrir vikið verða myndir hans oft á tíðum algjör grautur, tæknilega vel gerður grautur.  10.000 B.C. er engin undantekning á því, algjör grautur.

Davíð Örn Jónsson

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com