|

|
Heitt.is og Kvikmyndir.com á
Rás 2
Björg
Magnúsdóttir: Valentine
Björg
Magnúsdóttir fjallaði um kvikmyndina Valentine í
Heitt.is föstudaginn 11. maí.
Kvikmyndin
Valentine er væntanleg í kvikmyndahús borgarinnar
innan skamms. Af því tilefni ætla ég að segja
ykkur stuttlega frá henni. Í byrjun ber að geta
leikara myndarinnar, sem eru engir nýliðar, en með
aðalhlutverkin fara m.a. Denise Richards (The World
is Not Enough, Wild Things, Drop Dead Gorgeous), David
Boreanaz (Buffy the Vampire Slayer) og Marley Shelton
(Sugar & Spice). Leikstjórinn er hinn góðkunni
Jamie Blanks, en hefur hann einnig leikstýrt
spennutryllinum Urban Legend, sem hlaut einmitt mjög
góðar viðtökur gagnrýnenda.
Myndin fjallar um fjórar vinkonur (Shelton, Richards,
Jessica Capshaw, Jessica Cauffiel) sem eru allar að
leita að draumaprinsinum til að lifa fyrir (og
kannski deyja). Þær ólust upp í sama hverfi, gengu
í sama skóla, og deildu draumum um “hinn eina rétta”
og hina fullkomnu framtíð. Þessar fjórar vinkonur
hafa mjög ólíka persónuleika og kemur það
sterklega fram í myndinni. Er líða fer að Valentínusardegi
mörgum árum síðar fá þær allar Valentínusarkort
með hótunum sem þær misskilja sem sjúklegan
brandara. Nokkru eftir þessa skrýtnu kortasendingu
hittast vinkonurnar í jarðarför hjá nánum vini þeirra.
Þar hitta þær einnig rannsóknarlögreglumann, sem
rannsakaði dauða þessa vinar, og hefur hann komist
að því að eitthvað sé nú gruggugt við þennan
dauðdaga. Allt bendir til þess að maður, sem var
með vinkonugenginu í menntaskóla sé eitthvað viðriðinn
þetta mál, en hann var niðurlægður á Valentínusardansleik
af þeim mörgum árum áður. Það lítur út fyrir
að hann sé að reyna að ná fram hefndum ... og það
á sjálfan Valentínusardaginn. Er hótunarbréfin ágerast,
fara vinkonurnar að óttast alla þá sem þær þekkja
eða þekktu fyrir löngu. Eftir því sem líða
tekur á kvikmyndina, kemur virkilega í ljós hvað
spunnið er í vinkonurnar – að minnsta kosti þær
sem eftir lifa. Kvikmyndin Valentine er mjög í ætt
við hinar “eldri” hrollvekjur, nefna má þar
Halloween, Nightmare on Elmstreet og Friday the 13th
sem dæmi.
Kvikmyndagagnrýni
um "Valentine" mun birtast á Kvikmyndir.com
innan skamms.
|
|