|
Get Smart |
|
|
|
Get Smart er vel
heppnuð gamanmynd.
Hún er mjög fyndin á köflum, hefur fáa hæga og
leiðinlega hluta og heldur sér við efnið út
myndina.
Það ættu flestir að geta haft gaman af þessari
mynd.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Mummy: Tomb of the Dragon Emperor |
|
|
|
Lögmálið um minnkandi gæði
framhaldsmynda er í fullu gildi hér.
Fyrsta múmíu myndin sem kom út fyrir einhverjum
árum var ágæt skemmtun, framhaldsmyndin verri og
er þessi, sú þriðja sú versta.
Sagan er útþynnt , óspennandi og ófrumleg.
Í
þokkabót er myndin illa leikin.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Dark Knight |
|
|
|
Leikstjórinn Christopher Nolan sannar
það að hann er ekki einungis kvikmyndagerðamaður,
heldur listamaður sem getur spilað með
tilfinningar áhorfenda og haldið spennumögnuðu
andrúmsloftinu í tæpa þrjá klukkutíma.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Wanted |
|
|
|
Myndin er byggð á
teiknimyndasögum og eru hasaratriðin því vel
stílfærð eins og búast má við og húmorinn
beittur, svo úr verður vönduð ævintýra- og
hasarmynd.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Kjötborg |
|
|
|
Kjötborg er frábærlega heppnuð
heimildarmynd í alla staði. Stjörnur myndarinnar
eru bræðurnir og svo auðvitað
viðskiptavinir verslunarinnar. Þetta er algjör
gullmoli sem enginn má láta framhjá sér fara.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
The Bank Job |
|
|
|
The Bank Job kemur nokkuð skemmtilega á
óvart því hún brýtur mjög óvænt regluna um Jason
Statham, aðalleikara myndarinnar.
Reglan segir að engin mynd sem skartar Statham í
aðalhlutverki geti verið góð.
Vissulega er hann enn einstaklega lélegur
leikari en myndin er spennandi, fyndin og
skemmtileg.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Happening |
|
|
|
The Happening er líklega versta mynd
leikstjórans hingað til.
Myndin er illa gerð og á nokkrum vandræðalegum
köflum, hlægileg.
Það er ekki hægt að byggja upp spennu eða áhuga
þegar myndin er aðhlátursefni áhorfenda.
Þetta er ein mynd sem bara gengur ekki upp.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Sex and the City |
|
|
|
Loksins, loksins,
loksins leit kvikmyndin Beðmál í borginni
dagsins ljós. Eftir margra ára bið eru
vinkonurnar Carrie, Samantha, Miranda og
Charlotte komnar aftur og í þetta sinn stærri og
betri en nokkru sinni fyrr.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Forbidden Kingdom |
|
|
|
Söguþráðurinn, sem
byggður er á kínversku ævintýri, er áhugaverður
og bardagarnir ágætir en það er alveg ljóst að
bæði Jet Li og Jackie Chan eru farnir að eldast.
Fyrir vikið er fyrsti slagurinn þeirra á milli,
sem aðdáendur hafa beðið svo lengi eftir,
óeftirminnilegur í besta falli.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
U2 - 3D |
|
|
|
Þetta er þó ekki hefðbundin
heimildarmynd með viðtölum heldur hreinræktuð
tónleikamynd, tæpur einn og hálfur tími af
tónleikum. Það jaðrar hins vegar við
skemmdarverk að hafa hlé á mynd sem þessari og
er rétt að skora á bíóin að sýna hana í heild
sinni án hlés, enda nýtur hún sín þannig best.
Algjört skylduáhorf fyrir alla U2 aðdáendur.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Made of Honor |
|
|
|
Dempsey og Monaghan standa sig ágætlega og Kevin
McKidd er bráðskemmtilegur sem hinn fullkomni
Skoti, sem virðist ekki skorta neitt nema
persónuleika.
Made of Honor má þó eiga það að kossinn á kránni
er einn sá eftirminnilegasti á hvíta tjaldinu um
nokkurt skeið. Í stuttu máli,
formúlu-glanspappírsmynd sem samt má hafa gaman
af.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
What Happens in
Vegas |
|
|
|
Söguþráðurinn er ekki sérlega
trúverðugur og atriðin misgóð, en þetta er þó
ágætis sumarafþreying. Diaz hnykklar vöðvana í
takt við brandara Ashtons og virðast þau ná vel
saman í gáskafullri gamanmynd um ástir og
peninga.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Indiana Jones and
the Kingdom of the Crystal Skulls |
|
|
|
Þrátt fyrir ýmsa
vankanta, sem gera það að verkum að myndin er
sennilega vonbrigði fyrir marga aðdáendur sem
áttu von á enn meiru, þá er hér á ferðinni
heillandi ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Iron Man |
|
|
|
Jon Favreau leikstýrir myndinni og
virðist skilja hvernig á að gera góða mynd.
Fæstar ofurhetjumyndir síðustu ára hafa verið
góðar og í flestum tilfellum virðast sömu
mistökin vera gerð í þeim öllum, þ.e. ekki nógu
mikil áhersla er lögð á persónusköpun og
raunveruleika.
Iron Man er hins vegar vel skrifuð og vel útpæld
og fær Favreau prik fyrir það.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Forgetting Sarah
Marshall |
|
|
|
Alvarleikinn er víðs fjarri og
brandararnir alltaf á mörkunum, en virka flestir
vel. Salurinn tók þó misvel í myndina, enda voru
eflaust sumir þarna að leita að væminni
rómantískri gamanmynd, en þeir fóru fýluferð.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Fools Gold |
|
|
|
Ástarævintýri þeirra er þó ótrúverðugt,
söguþráðurinn almennt afar ófrumlegur og jafnvel
kjánalegur, sem og framvindan, en það er þó
eitthvað skemmtilega heillandi og sumarlegt við
þessa annars klisjukenndu mynd.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Definitely, Maybe |
|
|
|
Þetta er mjög skemmtileg rómantísk
gamanmynd sem allir ættu að geta haft gaman af.
Í heildina á litið er Definitely Mabe skemmtileg
mynd sem heldur áhuga manns út allan tímann.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
The Ruins |
|
|
|
Það má segja að
The Ruins sé nokkuð týpísk unglingahrollvekja
sem byggist að hluta á bregðuatriðum og að hluta
á ógeði.
Það fer ekki mikið fyrir persónusköpun eða vel
skrifuðu handriti enda er hér um formúlumynd að
ræða.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Lars and the Real
Girl |
|
|
|
Ryan Gosling sýnir
frábæran leik í aðalhlutverkinu og aðrir minna
þekktir leikarar standa sig einnig með prýði.
Leikstjóranum Craig Gillespie tekst að byggja
upp mikla samúð með aðalpersónunni og segja
þessa áhrifamiklu sögu með lágstemmdum og
heillandi hætti.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
Stóra planið |
|
|
|
Stóra
planið er ósköp saklaus og skemmtileg mynd.
Handritið er vel
skrifað og myndinni er vel leikstýrt.
Auga leikstjórans
fyrir smáatriðum er greinilega næmt en það eru
þessi smátriði sem gera myndina þetta
skemmtilega.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
10.000 B.C. |
|
|
|
Roland Emmerich er leikstjóri
myndarinnar en hann hefur áður leikstýrt t.d.
Independence Day, Godzilla og The Day After
Tomorrow.
Hann er mjög mistækur leikstjóri, reynir ávallt
að höfða til allra og fyrir vikið verða myndir
hans oft á tíðum algjör grautur, tæknilega vel
gerður grautur.
10.000 B.C. er engin undantekning á því, algjör
grautur.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
In Bruges |
|
|
|
Myndin virðist á köflum ansi stefnulaus
og jafnvel langdregin þrátt fyrir að vera
einungis rúmar 100 mínútur. Hún er engu að síður
ágæt skemmtun, fyndin og spennandi á köflum.
Sævar Guðmundsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
El Orfanato |
|
|
|
El Orfanato hefði
vel getað sómað sér á síðustu
óskarsverðlaunahátíð og hefði fyllilega getað
slegið þeim myndum sem þar var að finna við.
Hér er á ferðinni ein besta hrollvekja
síðari ára og ein besta mynd síðasta árs.
Ég
hvet alla til að skella sér á þessa og þakka
Græna ljósinu fyrir að færa okkur hana.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Scaphandre er le
papillon |
|
|
|
Þvílík mynd. Hún fékk
ein Óskarsverðlaun og tvenn Golden Globe
verðlaun og gleymist seint eða aldrei.
Katrín Guðjónsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
27 Dresses |
|
|
|
Það er í sjálfu sér
hægt að gera ágætar formúlumyndir í þessum anda,
en stundum misheppnast formúlan illilega og það
virðist hafa gerst hér hjá hinum lítt reynda
leikstjóra Anne Fletcher. Stelpur, í
guðanna bænum ekki draga kærastana ykkar með á
þessa mynd því þá munu þeir sennilega aldrei
vilja sjá aðra rómantíska gamanmynd á ævinni.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD
|
|
There Will Be Blood |
|
|
|
Boðskapurinn er nokkurn veginn sá sami
og í Citizen Kane, en þessar tvær myndir eiga
margt sameiginlegt.
Charles Foster Kane og Daniel Plainview eru alls
ekki svo ólíka persónur.
Líkt og Orson Welles í Citizen Kane reynir
leikstjórinn Paul Thomas Anderson að varpa ljósi
á þessa persónu, Daniel Plainview sem er
margslungnari en flestir.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|
|
Juno |
|
|
|
Sagan er
bráðskemmtileg frá upphafi til enda, fyndin en
þó með alvarlegum undirtónum. Juno er öðruvísi
mynd sem enginn ætti að missa af.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
The Kite Runner |
|
|
|
Það er óhætt að segja að
myndin skilji engan eftir ósnortinn, sagan
fylgir áhorfandanum löngu eftir að hann hefur
yfirgefið kvikmyndahúsið. Kvikmyndaárið byrjar
sannarlega vel og það kæmi ekki á óvart þó að
þessi frábæra mynd verði ein besta, ef ekki
hreinlega besta, mynd ársins hér á landi. Það
verður að minnsta kosti erfitt að slá henni við.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Before the Devil
Knows You're Dead |
|
|
|
Sagan er hæg og
nokkuð fyrirsjáanleg og jafnvel ótrúverðug þegar
á líður. Það er hins vegar óskandi að Lumet
haldi áfram kvikmyndagerð
fram á tíræðisaldur að minnsta kosti.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
No Country for Old
Men |
|
|
|
Svartur húmor bræðranna er á sínum stað
og söguþráðurinn góður. Helsti gallinn við
myndina er lengdin, hún er rúmlega tveir tímar
en hefði virkað betur undir tveimur tímum.
Á heildina litið er þetta þó besta mynd Coen
bræðra í langan tíma, frábær kvikmyndagerð.
María Margrét
Jóhannsdóttir
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
Sweeny Todd |
|
|
|
Það er ekki annað hægt en að lofa þessa
uppfærslu hans Tim Burton.
Stíll hans sem leikstjóra fellur afar vel að
söngleiknum, líklega hefðu fáir aðrir getað fært
þetta stykki á hvíta tjaldið.
Tim
Burton plús Sweeny Todd er eldfim blanda,
virkilega skemmtileg kvikmynd, vel sungin og
aldrei leiðinleg.
Davíð Örn Jónsson
LESA DÓMINN Í HEILD |
|
|
|