| EGGERT PÉTURSSON |
eggertpetursson.is |
|||||
|
|
||||||
| LISTAMAÐURINN FERILL MOLAR ÚRKLIPPUR Málverkin halda gildi sínu Málverk af sóley eftir Eggert Pérursson var á uppboði hjá Galleríi Fold í desember 2009. Þetta var eitt af málverkunum sem sýnt var hjá i8 haustið 2007, 20x30 sentimetrar, og ásett verð var 340-360 þús. kr. (svipað og upphaflega verðið). Það var selt á uppboðinu á 520 þús. kr. Að viðbættu uppboðsgjaldi og höfundarréttargjaldi var söluverðið 650 þús. kr. Óhætt er að segja að verk Eggerts séu enn í miklum metum. |
LISTAVERKIN EIGENDUR SÝNISHORN UMSAGNIR Blálilja á hálsmeni Eggert Pétursson listmálari og Sif Jakobs gullsmiður hönnuðu silfurhálsmen fyrir verslunina Leonard fyrir jólin 2009. Fyrirmyndin var fjörublómið blálilja. Hálsmenið er selt til styrktar blindum börnum og hefur salan gengið mjög vel. Þetta er kúlulaga men í tveimur stærðum. Hálsmenið mun enn vera til og einnig örfá eintök af hjartarfanum sem kom á markað fyrir jólin 2008, til styrktar hjartveikum börnum. Leonard.is. » |
SÝNINGARNAR
Á DÖFINNI EINKASÝNINGAR SAMSÝNINGAR Blómalandið í Höfn Í september 2009 var opnuð sýning á verkum Eggerts, undir yfirskriftinni Blómalandið, í Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn og stóð hún fram í janúar 2010. Bókaforlagið Crymogea gaf út vandaða sýningarskrá. Crymogea.is. » Skjámynd Án titils, 2006-2007. 1024x1280 pixlar. » © Eggert Pétursson |
jr@jr.is 24.01.2010 |
|||