|


|

Hver er uppáhaldsmynd
Sveppa?

hummmm....... besta mynd sem ég hef séð?? Sko Jack
Nicholson er snillingur í myndum eins og Shining,
Gaukshreiðrið, As Good as it Gets, o.fl.
og það eru myndir sem eru í miklu uppáhaldi. Svo
er það Al Pacino, hann var bestur í Scarface
og það er ein af mínum uppáhalds, einnig Scent
of a Woman sem var snilldin eina! Og svo má ekki
gleyma Godfather seríunni sem var einnig
snilldar kaffi. Forrest Gump fær mig alltaf
til þess að grenja eins og smástelpa, sértaklega
þegar Tom er að tala við Jenny yfir leiðinu og
segir "I miss you jenny" þá fer ég að
grenja. Svo er önnur mynd sem fær mig til þess að
grenja, það er Shawshank Redemption en þá
græt ég af gleði yfir því þegar hann labbar að
fangelsisverðinum og segir "Do you trust your
wife" og hjálpar honum svo með bankamálin og
biður hann um að gefa föngunum bjór vegna hitans
úti, þvílík snilld!!! En þetta er bara Stephen
King að þakka þar sem hann skrifaði þessa
smásögu. Pulp Fiction bjargaði lífi mínu,
mynd sem ég get horft á aftur og aftur og aftur og
finnst það alltaf jafn gaman, þvílíkt
gullhandrit, ekki hægt að klúðra því með
lélegum leik, og fyrst við erum að tala um
Pulparann þá er líka gott að minnast á Reservoir
Dogs sem er einmitt orðin 10 ára og eldist
ótrúlega vel, enda brillllli.
Jæja, besta
grínmynd sem ég hef nokkurntímann séð er án vafa
Big Lebowski, mynd sem er hægt að horfa
endalaust á og atriðið í endann þegar þeir eru
að dreifa ösku Donnies (Steve Buscemi) og hún
fýkur öll á Dúdinn og festist í skegginu og
sólgleraugunum, mjög fyndið. Eftir ég horfði á
þessa mynd komst ég upp á lagið að drekka White
Russian.
Og svo er það sú mynd sem hefur komið mér mest á óvart, það
er Happiness, þvílík snilld, þegar ég var búinn að sjá
hana þakkaði ég guði fyrir að eiga nokkuð eðlilega vini (sem
ég taldi óeðlilega fyrir myndina) og góða fjölskyldu, góð
mynd.
Ég læt hér við
sitja, en ég gæti skrifað endalaust meira um mínar
uppáhaldsmyndir, eins og LOTR, Die Hard
serían og Fifth Element, og alveg rétt, ég
ætla ekki að gleyma Fight Club, jibbí cola
það er enn ein snilldin sem heppnast fullkomlega,
ég fæ alltaf gæsahúð þegar pixies byrja að
spila "where is my mind" í endann og
blokkirnar hrynja niður, draumamynd, jæja ég er
hættur.
En ég vil benda
þeim á sem þetta nenntu að lesa að reyna að hafa
upp á þýskri mynd sem heitir "Funny Game"
hvar sem þeir geta því sú mynd er líklega
skrítnasta besta og mest sláandi mynd sem ég hef
nokkurtímann séð!!!!
Takk
Sveppi!
Sveppi
(Sverrir Sverrisson) er dagskrárgerðarmaður á
Popp-Tíví
|
|