BÍÓGESTURINN  



Hver er uppáhaldsmynd

Andreu Róbertsdóttur
?

Ég er í klípu! Það er nú alveg vonlaust fyrir mig að velja uppáhaldsbíómyndina mína. Allt þetta uppáhalds-eitthvað fer nú bara eftir stund og stað en ég skal gera mitt besta. Ég var oft í pössun hjá ömmu minni þegar ég var lítil og ótrúlegt en satt átti hún frábært vídeóspólusafn. Ég var því bara í góðum gír og horfði aftur og aftur á Sound of Music og ABBA The Movie. ABBA sigraði heiminn eftir að hafa unnið Júró árið 1974. Í myndinni er fylgst með goðunum á tónleikaferðalagi og einhverjum blaðamanni sem var alveg sveittur við það að reyna að ná viðtali við goðin. Búningarnir og sviðsframkoman tær snilld og þetta ólst ég upp við… guð minn góður! Og svo kom gelgjan og mikið af henni. Myndir eins og Sixteen Candles, Pretty Woman og Coming to America eru í miklu uppáhaldi hjá okkur stelpunum enda "meistarastykki". Við erum enn með frasana á hreinu og saumaklúbburinn heitir meira að segja Randy Whatson eftir einni persónu úr Coming to America. Og talandi um frasa, hvar hefði ég verið án kvikmyndarinnar Með allt á hreinu? Hana kunna nú allir jafn vel og stunurnar í When Harry Met Sally.

Sumar kvikmyndir eru bíómyndir og aðrar vídeómyndir. Sumar verður maður að sjá í bíói, eins og t.d. Moulin Rouge. Frábærir leikarar, tónlist, búningar, klipping og tökur. Ég var alveg eftir mig þegar myndinni lauk. Fór nefnilega á forsýninguna og vissi ekkert um myndina. Það er nú líka annað, mér finnst frekar dapurt að hafa lesið einhverja dóma um mynd áður en ég sé hana í bíói. Þessar stjörnur flækjast bara fyrir mér.

Önnur eftirminnileg bíóferð var þegar ég sá Life Is Beautiful. Þetta er frábær mynd sem spilar á allan tilfinningaskalann. Ég sat í sætinu mínu og skellihló og grenjaði til skiptis. Ótrúlega fín mynd.

Forrest Gump, LA Confidential, Last Tango in Paris, Lion King, Dirty Dancing, Godfather myndirnar, Pulp Fiction, Leyndarmál og lygar, Fargo og Festen eru myndir sem ég held t.d. mikið upp á. Ég skelli þeim stundum í tækið og virðist aldrei fá nóg.

Eitt er á hreinu, það er alveg sama hversu myndin er skemmtileg eða skelfileg … poppið er alltaf ómissandi í bíóinu og ógeðslega gott!

Ps. Brad Pitt er ógeðslega flottur í Fight Club - úllalla!!!

Andrea Róbertsdóttir

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com