Stefán Friðrik Stefánsson
Bestu myndir ársins 2003


1. THE LORD OF THE RINGS: THE RETURN OF THE KING
Besta myndin í trílógíu Peters Jacksons um Hringadróttinssögu J.R.R. Tolkien. Með þessari mynd lýkur frásögninni af föruneyti hringsins. Lokabaráttan í Hringadróttinssögu, þar sem allt er lagt í sölurnar. Hvert smáatriði er úthugsað, hér er um að ræða meistaraverk í kvikmyndagerð. Jackson hefur skapað eftirminnilegustu trílógíu kvikmyndasögunnar. Hérna birtast eftirminnilegustu bardagasenur í kvikmynd, baráttan við Mínas Tírith er svo undursamlega kvikmynduð að leitun er að betri bardagsenu í kvikmynd til þessa. Hér eru allir lausir endar fyrri myndanna bundnir saman. Myndin er mjög vel leikin. Útkoman er mynd sem stendur uppúr í kvikmyndagerð seinustu áratuga. Besta kvikmynd ársins 2003 - en jafnframt svo miklu meira en það.

2. KILL BILL: VOL. 1
Mögnuð mynd frá meistara Quentin Tarantino. Hér gengur allt upp, tónlist, kvikmyndataka og leikur skapa magnað andrúmsloft. Flott bardagaatriði, blóðið er ekki sparað í öllum limlestingunum. Uma Thurman er traust í aðalhlutverkinu, en hún hefur áður unnið með leikstjóranum eins og allir vita. Sannkölluð kvikmyndabomba, beðið með óþreyju eftir seinni myndinni.

3. THE PIANIST
Meistaraverk frá leikstjóranum Roman Polanski, persónulegasta mynd hans á ferlinum og sú besta hingað til. Efni myndarinnar eru hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar. Sjálfur upplifði hann þessar hörmungar og litlu mátti reyndar muna að hann léti lífið í þeim hildarleik. Segir frá ótrúlegu lífshlaupi pólska píanóleikarans Wladyslaw Szpilman og hvernig honum, með dyggri aðstoð pólsku andspyrnuhreyfingarinnar og ennfremur tilviljun og hreinni heppni tókst að leynast fyrir nasistum meginhluta stríðsins 1939-1945. Öll umgjörð myndarinnar er stórfengleg; tónlist, leikur handrit, framleiðsla og klipping - allt fyrsta flokks.

4. MYSTIC RIVER
Ein besta spennumynd ársins. Jafnframt ein besta og kröftugasta mynd Clint Eastwood sem leikstjóra. Gríðarlega vel leikin mynd. Í senn áhrifamikil og einkar átakanleg. Sean Penn sýnir eina bestu leikframmistöðu sína og hópur öflugra leikara hefur aldrei leikið betur en hér, t.d. Marcia Gay Harden. Mögnuð mynd sem vert er að mæla með.

5. PIRATES OF THE CARIBBEAN
Stórskemmtileg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna, í anda hinna gömlu góðu úrvalsmynda. Litríkt ævintýri sem gerist á 17. öld þegar sjóræningjarnir skunduðu um Karíbahafið. Virkilega skemmtileg, handritið kemur áhorfandanum oft mjög á óvart með því að fara í óvæntar áttir. Góður hasar og magnaðar tæknibrellur eru einnig aðall myndarinnar.

6. LOVE ACTUALLY
Ekta bresk rómantísk gamanmynd, í anda Four Weddings and a Funeral, Bridget Jones´s Diary og Notting Hill. Frábært leikaralið fer á kostum og má nefna leikara á borð við Hugh Grant, Liam Neeson, Colin Firth, Lauru Linney, Emmu Thompson og Alan Rickman. Þessi góða ástarsaga fjallar um átta mjög ólík pör í London rétt fyrir jól, sem glíma við ýmis vandamál í ástarlífinu. Mynd sem færir manni sælutilfinningu, þetta er mynd sem ætti að létta geð allra.

7. HULK
Skemmtilega óhefðbundin hasarmynd frá leikstjóranum Ang Lee, sem hittir beint í mark. Handritið er vel úr garði gert, sagan er virkilega vel unnin og skartar góðum leik. Áferð myndarinnar er skemmtileg og græni liturinn notaður á mjög áhugaverðan hátt. Klippingin og öll framsetning er í alla eins og í teiknimyndasögum. Ein besta hasarmynd ársins.

8. THE MATRIX REVOLUTIONS
Magnaður endir á kvikmyndatrílógíunni The Matrix. Glæsilegar tæknibrellur og flott flétta skapa góða stórmynd. Glæsilegt bardagaatriði er hápunktur myndarinnar. Stendur ekki langt að baki fyrstu myndinni sem þó telst enn besta og flottasta mynd trílógíunnar.

9. X-2
Flott hasarmynd með glæsilegum tæknibrellum. Að mínu mati betri en fyrri myndin og mun meira spennandi. Góð skemmtun.

10. CHICAGO
Skemmtilegur söngleikur sem sannar að gullaldartími söngleikjanna er kominn á ný eftir nokkuð mörg mögur ár. Ætti enginn að verða svikinn af frábærum söng- og dansatriðum og í heildina er myndin vel úr garði gerð og bráðskemmtileg. Virkilega vel leikin.

Næstu myndir á topp 10:
Adaptation
The Hours
Phone Booth
Matchstick Men
Identity
Dogville
Master and Commander: The Far Side of the World
About Schmidt
Catch Me If You Can
Sweet Sixteen
 

 

Stefán Friðrik Stefánsson er pistlahöfundur á Kvikmyndir.com

Ert þú sammála eða ósammála þessu vali á bestu myndum ársins?

 

 

Verstu myndirnar
Darkness Falls
Solaris
Dumb & Dumberer
Legally Blonde 2
The League of Extraordinary Gentlemen